Fótbolti - Eyþór Orri semur út tímabilið

06.maí.2024  21:31

Eyjamaðurinn Eyþór Orri Ómarsson hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV út tímabilið 2024, hann getur leikið flestar stöður á vellinum en hefur mest leikið sem sóknarmaður síðustu ár.

Eyþór Orri hefur spilað 25 deildarleiki með ÍBV og 10 bikarleiki en í þeim hefur hann skorað 1 mark. Eyþór á fjöldann allan af leikjum og mörkum fyrir KFS en hann á 13 mörk í 41 leik í 3. deild fyrir þá. 

Knattspyrnudeildin hlakkar til samstarfsins við Eyþór en hann mun vafalaust hjálpa liðinu í Lengjudeildinni í sumar.