Fótbolti - Nökkvi Már framlengir út 2026

21.mar.2024  19:00

Knattspyrnumaðurinn Nökkvi Már Nökkvason framlengir samning sinn við ÍBV en samningurinn gildir út árið 2026. Það er mikið gleðiefni fyrir knattspyrnudeildina að Nökkvi hafi ákveðið að framlengja til næstu þriggja ára.

Nökkvi sem er Eyjamaður ólst upp hjá Stjörnunni og lék þar upp alla yngri flokkana en hann skipti sumarið 2017 yfir til ÍBV og hefur leikið með liðinu samhliða námi í Bandaríkjunum síðan þá. Fyrst lék Nökkvi með meistaraflokki ÍBV í Lengjubikarnum fyrir leiktíðina 2018 og svo með KFS sumarið 2018. Hann lék í efstu deild með ÍBV árið 2019 og næstu tvö tímabil með ÍBV í Lengjudeildinni.

Síðustu tvö tímabil hefur Nökkvi, sem spilar mest í öftustu línu en getur einnig leyst stöður inni á miðjunni, spilað 15 leiki fyrir ÍBV í deild og hefur einnig tekið þátt í öllum leikjum ÍBV í Lengjubikarnum síðustu vikur.