Fótbolti - Eiður Atli lánaður til ÍBV

17.apr.2024  15:00

Hinn 22 ára Eiður Atli Rúnarsson hefur gengið til liðs við ÍBV á lánssamningi sem gildir út keppnistímabilið 2024. Eiður er varnarmaður sem er uppalinn hjá HK sem lánar hann til ÍBV, samningur Eiðs við HK rennur út að loknu keppnistímabilinu 2025.

Eiður byrjaði alla leiki HK í Lengjubikarnum fyrir leiktíðina og lék 17 deildarleiki auk tveggja bikarleikja fyrir HK á síðustu leiktíð. Fyrsti meistaraflokksleikur Eiðs kom fyrir Ými þegar hann var 17 ára.