Fótbolti - Atli á leið til Asker?

08.nóv.2008  16:03
Markaskorarinn mikli, Atli Heimisson dvelst nú hjá norska 2.deildarfélaginu Asker við æfingar. Félagið hefur haft augastað á leikmanninum um nokkra hríð og buðu honum til Noregs í vikunni. Atli fór utan á mánudag. Norska liðið hefur ekki gert ÍBV tilboð í leikmanninn en Atli er með samning við ÍBV til næstu tveggja ára. Fleiri lið hafa sýnt Atla áhuga síðustu mánuði.