Fótbolti - Atli Jóh. í KR

20.okt.2006  12:31
Eyjamenn og KR-ingar ná samkomulagi um félagsskipti Atla Jóh.
Í morgun tókst endanlegt samkomulag á milli ÍBV og KR um félagaskipti Atla Jóh. til síðarnefnda liðsins. Atli hefur einnig náð samkomulagi við KR-inga um sinn hlut og mun því ganga til liðs við KR í dag. Samkomulag þetta felur ekki bara í sér að Atli skipti um lið heldur munum við Eyjamenn eiga möguleika á að fá að lánaða unga leikmenn hjá KR fyrir átökin næsta sumar, ef að samkomulag næst við viðkomandi leikmenn, og jafnvel gæti orðið frekara samstarf félaganna á milli, en þær hugmyndir eru á byrjunarstigi og því of snemmt a segja nokkuð til um það.
En það er ljóst að Atli Jóh er að yfirgefa herbúðir okkar, að svo stöddu, og viljum við þakka honum frábær störf í þágu félagsins og óska honum alls hins besta á nýjum vígstöðvum, um leið og við vonumst til að sjá hann aftur í ÍBV búningnum síðar á ferlinum