Handbolti - Sunna Jónsdóttir áfram hjá ÍBV!

02.feb.2022  13:44

Sunna Jónsdóttir hefur skrifað undir nýjan 3 ára samning við handknattleiksdeild ÍBV.

Hún hefur leikið með ÍBV frá haustinu 2018 og hefur nú samþykkt að starfa með okkur fram á vorið 2025, hið minnsta. Sunna hefur verið fyrirliði kvennaliðsins okkar undanfarin ár og sinnt því hlutverki ákaflega vel.

Sunna er einn af albestu leikmönnum Olísdeildar kvenna. Hún er og hefur verið einn lykilmönnum ÍBV liðsins og er mikill leiðtogi, bæði innan sem utan vallar. Hún hefur einnig verið fastamaður í A landsliði kvenna.

Þessar fréttir eru mikið gleðiefni og hlökkum við mikið til þess að starfa áfram með Sunnu.

Stelpurnar okkar hafa verið á flottu skriði undanfarið og á Sunna mikinn þátt í því. Nú loksins mega aftur koma áhorfendur og Sunna vill biðla við Eyjamenn að fjölmenna á leikinn í kvöld sem og aðra leiki hjá liðunum okkar.

Mynd frá: Huldu Margréti ljósmyndara