Fyrstu æfingaleikir meistaraflokks karla í knattspyrnu verða um helgina. Á laugardag spilar ÍBV við Grindavík í Reykjaneshöll og á sunnudag við U-17 ára landslið Íslands.
Grindavíkurleikurinn hefst kl 17:30 og leikurinn við U-17 ára liðið í Egilshöll á sunnudagsmorgun kl 09:00. Lið ÍBV mun að mestu vera skipað ungum leikmönnum í þessum leikjum og fróðlegt verður að sjá hvort þeirra tími sé kominn.