Fótbolti - Glæsilegu Shellmóti lokið

03.júl.2006  10:59

Shellmótinu árið 2006 lauk í gærkvöldi með glæsilegu lokahófi í Íþróttahöllinni. Þar voru veitt verðlaun fyrir unnin afrek á mótinu og fóru strákarnir sáttir heim eftir viðburðaríka daga í Vestmannaeyjum. Mótið gekk vel fyrir sig og stóðu allir þátttakendur sig vel og voru félögum sínum til sóma.

ÍBV-Íþróttafélag vill þakka öllum þátttakendum fyrir komuna á Shellmót 2006 og vonast til að sjá sem flesta að ári liðnu. Hér fyrir neðan er listi yfir sigurvegara í A, B, C og D liðum.

A-lið :

1.sæti : HK

2.sæti : ÍBV

3.sæti : Grótta

B-lið :

1.sæti : ÍBV

2.sæti : Fjölnir

3.sæti : Valur

C-lið :

1.sæti : Fylkir

2.sæti : ÍBV

3.sæti : FH

D-lið :

1.sæti : Víkingur

2.sæti : Grótta

3.sæti : Fylkir