Yngri flokkar - Milena Mihaela í lokahóp U16 hjá KSÍ

06.maí.2026  10:29

Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U16 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Milenu Mihaela Patru í lokahóp sem tekur þátt í UEFA Development móti í Finnlandi dagana 21.-28. maí nk.

Leikir Íslands:

Föstudagur 22. maí kl. 17:30 Ísland - Ungverjaland

Sunnudagur 24. maí kl. 17:30 Ísland - Írland

Miðvikudagur 27. maí kl. 14:00 Ísland - Finnland

 

ÍBV óskar Milenu innilega til hamingju með valið og góðs gengis!