Félagsmannaafsláttur (leiðbeiningar)

02.mar.2023  13:03

Annað fyrirkomulag verður á félagsmannaafslættinum í ár.
Í stað þess að kaupa miða á sérstakri síðu líkt og í fyrra þarf að skrá sig inn fyrir afslættinum hér: tix.is/ibv

Fyrst þarftu að tryggja að þú sé innskráð/ur á tix.is á þinn notanda, sá notandi þarf að innihalda upplýsingar um kennitölu gilds félagsmanns. Svo þarftu að "kaupa vöruna" félagsmaður ÍBV á 0 kr á slóðinni tix.is/ibv

Eftir þetta mun þinn notandi geta séð flipann "Félagsmaður ÍBV" efst í almenna kaupferlinu með helgarpössum, þar sem hann hefur möguleika á því að kaupa þrjá miða á sérstöku félagsmannaverði.

En forsala fyrir Þjóðhátíð 2023 hefst á morgun kl 9:00.