Yngri flokkar - Elísabet valin í U15 fyrir UEFA mót

22.sep.2022  10:00

Elísabet Rut Sigurjónsdóttir, leikmaður í 3. flokki ÍBV, hefur verið valin til að leika fyrir Íslands hönd með U15 ára liði sem tekur þátt í UEFA development móti í byrjun október.

Alls eru stúlkurnar 20 frá Íslandi sem voru valdar í liðið sem mun koma til með að æfa síðustu dagana í september og halda út í byrjun október. Á dagskránni eru leikir við Tyrkland, Pólland og Litháen áður en haldið verður heim um viku síðar.

Elísabet hefur leikið mjög vel á tímabilinu með yngri flokkum ÍBV en hún hefur einnig staðið sig vel í þau skipti sem hún hefur verið valin í yngri landslið Íslands til æfinga. 

Við óskum Elísabetu alls hins besta í verkefninu sem og öðrum verkefnum sem hún tekur sér fyrir hendur.