Fótbolti - Lokahóf knattspyrnudeildar 2021

27.sep.2021  14:36

Lokahóf meistaraflokka félagsins í knattspyrnu var haldið sl. laugardag en þar var Pepsi Max deildar sætum liðanna vel fagnað. En eins og flestir vita tryggðu strákarnir í meistaraflokki sér sæti á meðal þeirra bestu í Pepsi Max deild karla næsta sumar með því að lenda í 2. sæti Lengjudeildarinnar og meistaraflokkur kvenna hélt sínu sæti á meðal þeirra bestu í Pepsi Max deild kvenna en þær höfnuðu í 7. sæti deildarinnar.

Júlíana Sveinsdóttir og Felix Örn Friðriksson voru heiðruð fyrir að ná 100 leikum, Júlíana í sumar en Felix í fyrrasumar. Þar sem ekki var hægt að halda lokahóf eftir tímabilið í fyrra þá nýtti knattspyrnuráð karla tækifærið og afhenti Jóni Ingasyni viðurkenningu fyrir að vera leikmaður ársins 2020 og Tómasi Bent Magnússyni viðurkenningu fyrir að vera efnilegasti leikmaðurinn 2020.

Ian Jeffs var heiðraður, en hann mun hverfa á braut eftir langan og farsælan feril sem leikmaður og þjálfari hjá félaginu.

 

Veittar voru eftirtaldar viðurkenningar til elstu flokka félagsins.

 

Meistaraflokkur kvenna:

Besti leikmaðurinn: Olga Sevcova

ÍBV-ari: Clara Sigurðardóttir

Markahæsti leikmaðurinn: Viktorija Zaicikova

Fréttabikarinn / efnilegasti leikmaðurinn: Þóra Björg Stefánsdóttir

 

Meistaraflokkur karla:

Besti leikmaðurinn: Eiður Aron Sigurbjörnsson

ÍBV-ari: Guðjón Pétur Lýðsson

Markahæsti leikmaðurinn: Sito

Fréttabikarinn / efnilegasti leikmaðurinn: Guðjón Ernir Hrafnkellsson

 

2. flokkur kvenna:

Besti leikmaðurinn: Helena Jónsdóttir

ÍBV-ari: Thelma Sól Óðinsdóttir

Efnilegasti leikmaðurinn: Ragna Sara Magnúsdóttir

Markahæsti leikmaðurinn: Selma Björt Sigursveinsdóttir

 

2. flokkur karla:

Besti leikmaðurinn: Björgvin Geir Björgvinsson

ÍBV-ari: Dagur Einarsson

Efnilegasti leikmaðurinn: Haukur Helgason

Markahæsti leikmaðurinn: Andrés Marel Sigurðsson