Fótbolti - Annie Williams til ÍBV

23.apr.2021  12:34

Meistaraflokki kvenna hjá ÍBV hefur borist liðsstyrkur en Annie Williams mun leika með liðinu í sumar. Annie er fædd 1997, uppalin í Bandaríkjunum og lék með háskólaliði South Dakota.

Annie er réttfættur varnarmaður og kemur til með að styrkja lið ÍBV fyrir átökin í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Annie lék síðast á samningi í Costa Rica árið 2020 með Deportivo Saprissa. Annie var í liðinu þegar ÍBV lék æfingaleik við ÍA í gær og átti flottan leik í 4:1 sigri.

Aðeins ellefu dagar eru í fyrsta leik ÍBV í Pepsi Max-deildinni sem fer fram þann 4. maí á Hásteinsvelli þegar Þór/KA kemur í heimsókn. ÍBV og Þór/KA hafa mæst 10 sinnum á Hásteinsvelli, en ÍBV hefur unnið fimm, Þór/KA tvo og þremur lauk með jafntefli.