Fótbolti - DB Pridham til ÍBV

17.mar.2021  11:16

ÍBV hefur samið við Delaney Baie Pridham, 23 ára sóknarmann sem kemur frá Bandaríkjunum. Ásamt því að vera sóknarmaður getur Delaney leikið á miðjunni.

 

DB, eins og hún er kölluð, hefur æft með liðinu undanfarnar vikur og spilaði æfingaleik gegn Gróttu þar sem hún lagði upp mark. Delaney kemur til með að styrkja lið ÍBV fyrir baráttuna sem framundan er í Pepsi-Max deildinni.

 

Hún spilaði fyrir DeAnza Force Youth liðið í ECNL deild Bandaríkjanna sem er sú sterkasta í yngri flokkum þar í landi. Hún spilaði seinna með háskólaliði Santa Clara, liðinu gekk ágætlega og gerðu vel í NCAA deildinni.

 

Hún kemur beint til ÍBV frá Santa Clara háskólanum, sem er mjög sterkur fótboltaskóli.