Fótbolti - Flottir peyjar skrifa undir hjá ÍBV

22.jan.2021  12:21

Þeir Adam Smári Sigfússon, Dagur Einarsson, Einar Þór Jónsson, Haukur Helgason og Karl Jóhann Örlygsson skrifuðu í gær undir 2ja ára samninga við knattspyrnudeild ÍBV. Þessir flottu peyjar voru í lykilhlutverkum í 3. flokki í fyrra sem stóð sig með stakri prýði. Þeirra bíða nú verkefni með 2. flokki og mögulega KFS eða aðalliði ÍBV. 

Það er gaman að sjá þann efnivið sem er í Eyjum og eru allir á 2. og 3. flokks aldri sem hafa áhuga á fótbolta hvattir til að mæta á æfingar og kynnast því metnaðarfulla starfi sem er í fótboltanum í Eyjum. Til hamingju með samningana strákar og áfram ÍBV!