Yngri flokkar - 5 leikmenn á úrtaksæfingar hjá KSÍ

15.jan.2021  14:40

Jörundur Áki Sveinsson, landsliðsþjálfari U16 og U17 kvenna og Þórður Þórðarson landsliðsþjálfari U-19 kvenna hafa valið hópa sem taka þátt í úrtaksæfingum í næstu viku.

Æfingarnar fara fram í Skessunni í Hafnarfirði. Í ljósi stöðunnar í samfélaginu vegna heimsfaraldursins covid-19 eiga leikmenn að mæta klæddir í sínu eigin æfingafatnaði beint í Skessuna.

ÍBV á 5 fulltrúa í þessum 3 liðum og óskum við þeim til hamingju.

 

Eftirtaldir leikmenn voru valdir:

U-16 kvenna

Berta Sigursteinsdóttir

 

U-17 kvenna

Helena Jónsdóttir

Þóra Björg Stefánsdóttir

 

U-19 kvenna

Clara Sigurðardóttir

Ragna Sara Magnúsdóttir

 

Einnig voru þær Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving og Kristjana R. Kristjánsdóttir Sigurz valdar í U-19 hópinn, en þær spiluðu með ÍBV síðasta sumar.