Mynd: Addi í London
Gleðilegan Þrettánda kæru vinir.
Í dag verður Þrettándagleði ÍBV með breyttu sniði í ljós þeirra takmarkana sem gilda í samfélaginu.
Hér eru nokkrir punktar sem gott er að hafa í huga:
- Þeir sem eiga Þrettándafána mega endilega flagga honum í dag, eigum til nokkra á skrifstofu félagsins fyrir þá sem vantar
- Kveikt verður á kertunum (ÍBV stöfunum) kl. 19:00 á Molda.
- Jólasveinarnir verða með blys upp á Há og veifa til barnanna og hver veit nema að þeir birtist "live" á Facebook síðu Þrettándans í kvöld.
- Gaman væri að börnin í bænum myndu kveikja á blysum á sama tíma til að jólasveinarnir sjái þau.
- Skotið verður upp flugeldum af Hánni, Helgafelli, Eldfelli, Heimakletti og Klifi.
- Þrettándablaðið er komið út stútfullt af skemmtilegheitum, það er aðeins í rafrænu formi og hægt að skoða það hér
- Hægt er að hlusta á Þrettándatónlist til að koma sér í gírinn hér.
- Flugeldasala Björgunarfélagsins er opin í dag kl. 15:00-19:00, 25% afsláttur af öllu og eiga þeir til eitthvað af blysum á sérstöku tilboði 350 kr. stk.
- Við hvetjum ykkur til að virða fjöldatakmarkanir og sóttvarnir og vinsamlegast safnist ekki saman í hópum til að fylgjast með.
- Síðan er tilvalið að fylgjast með Kára Kristjáni vini okkar og strákunum í landsliðinu mæta Portúgal í undankeppni EM 2022 á RÚV kl. 19:30.
- Eftir leikinn er svo hægt að horfa á Þrettándamyndina, en hægt er að leigja hana hér.
Njótum í garðinum heima og höldum Þrettándakaffi með jólukúlunni okkar!
Góða skemmtun.