Útvarpsþáttur um Þrettándann í Eyjum

15.jan.2013  17:00
Þrettándagleði ÍBV vekur athygli víða. Á síðasta þrettánda var gerður þáttur um þrettándagleði ÍBV sem fluttur var á Rás 1 í síðustu viku. Gaman er að hlusta á menn rifja upp gamla góða tíma um þessa skemmtilegu hátíð auk þess sem dýrðinni er lýst fyrir þá sem ekki hafa náð að upplifa herlegheitin. Hér má nálgast upptökuna.