Beta Rán Sigríðardóttir, Bríet Ósk Magnúsdóttir og María Sigrún Jónasdóttir hafa verið valdar til að taka þátt í Hæfileikamótun N1 og KSÍ. Æfingarnar sem og önnur dagskrá fer fram í Miðgarði, Garðabæ 16.-18. mars undir stjórn Aldísar Ylfu Heimisdóttur, þjálfara í Hæfileikamótun.
ÍBV óskar stelpunum innilega til hamingju með valið og góðs gengis!