Yngri flokkar - Glódís Dúna á æfingar með U16 hjá HSÍ

02.mar.2026  10:26

Rakel Dögg Bragadóttir og Einar Jónsson, landsliðsþjálfarar U16 hjá HSÍ, hafa kallað Glódísi Dúnu Óðinsdóttur inn í æfingahóp sem kemur saman 6.-8. mars nk. Áður höfðu þau valið Siennu Björt Garner og Tönju Harðardóttur í hópinn. Æfingarnar fara frama á höfuðborgarsvæðinu.

 

ÍBV óskar stelpunum innilega til hamingju með valið og óskar þeim góðs gengis!