Margrét Magnúsdóttir, landsliðsþjálfari U17 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Kristínu Klöru Óskarsdóttur í leikmannahóp sem tekur þátt í milliriðli EM sem fer fram í Serbíu dagana 12.-21. mars nk. Liðið keppir 3 leiki:
Laugardagur 14. mars kl. 11:00
Ísland - Frakkland
Þriðjudagur 16. mars kl. 11:00
Austurríki - Ísland
Föstudagur 19. mars kl. 12:00
Serbía - Ísland
ÍBV óskar Kristínu Klöru innilega til hamingju með valið og góðs gengis!