GLÓFAXI - ný félagsaðstaða yngri flokka

15.maí.2025  14:53

Á morgun föstudag verður vígsla á nýrri félagsaðstöðu yngri flokka ÍBV í Týsheimilinu (þar sem ræktin var áður). Við höfum gefið aðstöðunni nafnið GLÓFAXI til heiðurs Bedda heitnum á Glófaxa, en hann var dyggur styrktaraðili félagsins og vel við hæfi að hafa Glófaxa við hliðina á Gullberginu.

Glófaxa feðgar Halli og Beddi munu taka opnunarleik í fótboltaspilinu kl. 10:00 og eftir það verður aðstaðan opin fram eftir degi.

Aðstaðan er hugsuð fyrir yngri iðkendur félagsins, til að geta sest niður á milli æfinga og borðað nesti, spila ofl. Opið verður 12-18 virka daga. Einnig geta þjálfarar/foreldrar nýtt aðstöðuna til að hittast með flokka til að horfa á leiki eða bara fyrir skemmtikvöld.

Verkefnið fékk styrk frá Vestmannaeyjabæ í gegnum "Viltu hafa áhrif?".