Fótbolti - Birgir á láni til ÍBV

13.jan.2025  14:05

Knattspyrnumaðurinn Birgir Ómar Hlynsson hefur gengið til liðs við ÍBV á lánssamningi út keppnistímabilið 2025. Hann kemur til liðsins frá Þór þar sem hann hefur leikið 89 leiki, langflesta í Lengjudeildinni.

Birgir er 23 ára bakvörður sem er uppalinn hjá Þór og hefur leikið þar allan sinn feril, meðal annars á meðan Þorlákur Árnason var þjálfari þeirra, Láki hafði þetta um Birgi að segja.

„Birgir Ómar er gríðarlega hraður varnarmaður sem er einnig með mjög góða boltameðferð. Hann hefur spilað bæði miðvörð og bakvörð á sínum ferli en við hugsum hann fyrst og fremst sem bakvörð í okkar liði.“

Knattspyrnuráð býður Birgi velkominn til Vestmannaeyja og hlakkar til samstarfsins.