Hreinsunardagur ÍBV

24.apr.2024  17:22

Á laugardaginn 27.apríl á milli kl 13-15 ætlar ÍBV að halda Hreinsunardag.  Mæting er við Hásteinsvöll og ætlum við að taka til á því svæði og þar í kring.

Í lokin verður síðan öllum boðið  í grill og þá verður einnig ís í boði fyrir börnin.  Við hvetjum bæjarbúa til að leggja málefninu lið og mæta og gera svæðið okkar fegurra sem og sér glaðan dag í leiðinni. 

 

ÍBV vill með þessu leggja sitt að mörkum til Stóra Plokkdagsins sem er annars á sunnudeginum  En þar sem við ætlum mörg hver að fylgja handboltapeyjunum okkar í leik þeirra gegn FH á sunnudeginum í Hafnarfirði, þá ætlum við að taka forskot á daginn með því að hreinsa vel í kringum okkur á laugardeginum.