Ísey María á úrtaksæfingar með U-15 hjá KSÍ

16.feb.2024  15:47

Magnús Örn Helgason, landsliðsþjálfari U15 kvenna hjá KSÍ, hefur valið Ísey Maríu Örvarsdóttur í hóp til úrtaksæfinga dagana 26.-28. febrúar 2024. Æfingarnar fara fram í Miðgarði, knattspyrnuhúsi í Garðabæ og spilað verður æfingaleik við Stjörnuna (4. fl. kk) á Samsungvellinum.

ÍBV óskar Ísey Maríu innilega til hamingju með valið!