Fótbolti - Vicente Valor til liðs við ÍBV

05.feb.2024  12:00

Spænski knattspyrnumaðurinn Vicente Valor hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV og kemur til með að leika með liðinu í Lengjudeild karla í sumar, samningurinn gildir til loka árs 2025.

Valor sem er 26 ára gamall miðjumaður hefur leikið í bandaríska háskólaboltanum síðasta árið en þar hefur hann leikið með Bolabítunum frá Bryant háskólanum. Á síðustu mánuðum hefur hann byrjað alla leiki liðsins nema einn og komið að þó nokkrum mörkum bæði með stoðsendingum og góðum skotum. 

Knattspyrnudeild ÍBV býður Valor velkominn til liðsins og í leiðinni til Vestmannaeyja.