Fótbolti - Helena Hekla og Elísa áfram hjá ÍBV

05.feb.2024  07:30

Knattspyrnukonan unga Helena Hekla Hlynsdóttir verður áfram leikmaður ÍBV en hún skrifaði undir samning sem gildir til loka árs 2025. Helena lék seinni hluta tímabilsins með ÍBV á síðustu leiktíð eftir að hafa áður leikið með liðinu í 3. flokki. Hún er 20 ára leikmaður sem getur leikið margar stöður á vellinum og kemur til með að hjálpa ÍBV í baráttunni í Lengjudeild kvenna.

Ásamt Helenu þá skrifaði Elísa Hlynsdóttir, 17 ára systir hennar, einnig undir samning sömu lengdar við félagið. Þetta er fyrsti samningu Elísu við ÍBV en hún fékk félagaskipti til félagsins í maí á síðasta ári.

Knattspyrnuráð ÍBV hlakkar til samstarfsins við þær systur.