Fótbolti - Thelma Sól áfram með ÍBV

26.jan.2024  15:00

Eyjakonan Thelma Sól Óðinsdóttir hefur skrifað undir samning næstu tvö árin við knattspyrnudeild ÍBV, Thelma hefur leikið 47 leiki í efstu deild síðustu þrjú árin fyrir ÍBV og 62 leiki samtals í efstu deild og bikarkeppni KSÍ frá því að hún spilaði sinn fyrsta leik 17. júlí 2018, fyrsti byrjunarliðsleikurinn kom 27. september 2020.

Thelma sem er 19 ára gömul kemur til með að reynast liðinu vel í vegferð sinni að sæti í efstu deild á ný.