Fótbolti - Mikkel áfram markmannsþjálfari ÍBV

10.jan.2024  17:00

Markmannsþjálfarinn Mikkel Hasling verður áfram starfandi hjá ÍBV út árið 2024. Mikkel sem er 32 ára Dani hefur verið markmannsþjálfari og aðstoðarþjálfari hjá meistaraflokki karla og kvenna og eru mikil gleðitíðindi að hann verði áfram hjá félaginu.

Mikkel hefur starfað hjá félaginu við góðan orðstír síðastliðin tvö tímabil og meðal annars komið að markmannsþjálfun yngri markvarða, mikil ánægja er hjá félaginu með hans störf.