Fótbolti - Ársrit knattspyrnudeildar ÍBV 2023

24.des.2023  17:30

Ársrit knattspyrnudeildar ÍBV 2023 er komið út og er hægt að skoða með því að smella hér.

Í blaðinu er rætt við leikmenn og þjálfara úr karla og kvennaliði félagsins ásamt því er annáll yngri flokka starfsins. Í blaðinu eru skemmtilegar myndir frá sumrinu og jólakveðjur frá styrktaraðilum.

Knattspyrnuráð ÍBV vill óska öllum gleðilegra jóla og þakka fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða. Ráðið vill sérstaklega þakka öllum bakhjörlum og sjálfboðaliðum fyrir stuðninginn á þessu ári.

Áfram ÍBV, alltaf, alls staðar!