Fótbolti - Sandra Voitane aftur til félagsins

13.des.2023  09:40

Lettneska knattspyrnukonan Sandra Voitane hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV út keppnistímabilið 2024. Sandra lék með ÍBV árið 2022 og er öflugur leikmaður sem getur spilað margar stöður á vellinum.

Hún er 24 ára gömul landsliðskona en hún hefur skorað 15 mörk í 60 A-landsleikjum og hefur leikið 12 leiki í Meistaradeild Evrópu.

Samtals hefur hún leikið 37 deildarleiki hérlendis með ÍBV og Keflavík og skorað í þeim 6 mörk.

Knattspyrnuráð ÍBV býður Söndru velkomna aftur til félagsins.