Fótbolti - Camila Pescatore til ÍBV

06.feb.2023  11:00

Knattspyrnukonan Camila Pescatore hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild ÍBV út keppnistímabilið 2023. Camila er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað margar stöður á vellinum en hefur þó aðallega leikið í vinstri bakverði síðustu ár.

Camila er 22 ára gömul, hún fæddist í Venesúela en hefur rætur að rekja til Ítalíu, hún er reglulega hluti af landsliði Venesúela og heldur til Vestmannaeyja eftir næsta verkefni landsliðsins um miðjan febrúar.

Hún hefur leikið með háskólaliði William Carey síðustu ár en þar var hún með mikilvægustu leikmönnum liðsins, þar sem hún skoraði 7 mörk og átti 7 stoðsendingar í 20 leikjum á síðustu leiktíð.

Við viljum bjóða Camila velkomna til Vestmannaeyja og hlökkum við til samstarfsins.