Fótbolti - Þóra Björg með landsliðinu til Portúgal

02.feb.2023  10:22

Þóra Björg Stefánsdóttir hefur verið valin í 20 manna hóp íslenska U19 ára landsliðsins sem heldur út til Portúgal á æfingamót þann 15. - 21. febrúar.

Í leikmannahópnum eru margir öflugir leikmenn sem hafa leikið í efstu deild og verður gaman að fylgjast með liðinu etja kappi við Portúgal, Pólland og Wales.

Þóra hefur leikið 51 leik í efstu deild og skorað í þeim átta mörk. Hún hefur leikið með ÍBV upp alla yngri flokkana og var á síðustu leiktíð markahæsti og besti leikmaður 2. flokks ÍBV.

ÍBV óskar Þóru til hamingju með sætið í U19 ára liðinu og óskar henni og liðinu velfarnaðar í verkefninu.