Fótbolti - Fótboltaskóli ÍBV í næstu viku

20.des.2022  08:00
Fótboltaskóli ÍBV 27., 28. og 29. desember!
 
Knattspyrnudeildin ætlar að vera með fótboltaskóla ÍBV á milli jóla og nýárs en það verða þjálfarar yngri flokka og leikmenn meistaraflokka sem sjá um skólann. Æfingar fara allar fram í Herjólfshöllinni og lýkur síðustu æfingu hvors hóps á pizzaveislu í Týsheimilinu.
 
Fyrri hópur: 6. og 7. flokkur karla og kvenna - frá klukkan 11:15 - 13:15 alla dagana
Seinni hópur: 4. og 5. flokkur karla og kvenna - frá klukkan 13:30 - 15:30 alla dagana
 
Verð í skólann í ár er 3.000 kr. og fer skráning fram á knattspyrna@ibv.is. Í skráningu verður að taka fram nafn og kennitölu iðkanda.
 
Jólasveinar elska að gefa gjafabréf í fótboltaskólann í skóinn og er þeim bent á að panta svoleiðis í gegnum knattspyrna@ibv.is en hægt er að sækja gjafabréf í Týsheimilinu á milli 8-12 og 13-16.