Fótbolti - Eiður Aron framlengir!

05.des.2022  10:56

Aðventan er tími gleðifregna og við færum ykkur þær gleðifréttir að Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði ÍBV, hefur framlengt samning sinn út tímabilið 2025! Mikilvægi Eiðs þarf ekki að fjölyrða um en hann var valinn besti leikmaður liðsins eftir liðið tímabil.

Knattspyrnuráð lítur á samning þennan sem hornstein í því að ná þeim markmiðum sem við höfum sett okkur til næstu ára og óskar bæði stuðningsmönnum og Eiði sjálfum til hamingju með samninginn.

Áfram ÍBV, alltaf, alls staðar!