Þrettándagleði ÍBV 2021

29.des.2020  12:58

Verður með breyttu sniði

Mynd: Addi í London

Þrettándagleði ÍBV verður með breyttu sniði þetta árið, en Grýla, Leppalúði og þeirra hyski eru komin í sjálfskipaða sóttkví og treysta sér ekki til byggða, þrátt fyrir mjööög háan aldur þá eru þau því miður ekki í forgang að fá bóluefni :)

 

En í sárabót þá munum við kveikja á kertunum á Molda og vera með flugeldasýningu eins og venjulega ásamt því að Jólasveinarnir munu horfa til byggða ofan af Há, til að geta veifað til barnanna miðvikudaginn 6. janúar kl. 19:00

 

Við hvetjum ykkur til að virða fjöldatakmarkanir og sóttvarnir, og vinsamlegast safnist ekki saman í hópum til að fylgjast með.

 

Það myndi gleðja okkur ef þeir sem eiga Þrettándafána myndu flagga þeim þennan dag, ef ykkur vantar einn slíkan þá eigum við nokkra til sölu á skrifstofu félagsins í Týsheimilinu.

 

Njótum í garðinum heima og höldum Þrettándakaffi með jólakúlunni okkar!

 

Þrettándakveðja

ÍBV Íþróttafélag