Yngri flokkar - Lokahóf yngri flokka

15.sep.2015  14:06

Lokahófið verður fimmtudaginn 17. september kl. 17:00 á Hásteinsvelli.

Veitt verða einstaklingsverðlaun í 5. og 4. flokki karla og kvenna en yngri flokkar fá viðurkenningarskjöl.

Gaman væri ef allir iðkendur myndu mæta í ÍBV treyjunum því við ætlum að taka hópmynd af iðkendum félagsins. Í lok hófsins verður boðið upp á pylsur og gos við Týsheimilið.

Við hvetjum foreldra til að mæta og eiga með okkur góða stund.