Yngri flokkar - Eva Aðalsteins á æfingar hjá U-15 hjá HSÍ.

05.maí.2015  15:24

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Stefán Arnarson landsliðsþjálfarar u-15 ára landsliðs kvenna hafa valið 28 manna æfingarhóp sem mun æfa dagana 14. og 15. mai nk. og spila 2 vináttulandsleiki við Færeyjar helgina 16. og 17. maí. Þjálfararnir völdu Evu Aðalsteinsdóttur frá ÍBV sem er sannarlega vel að valinu komin. Eftir þessa leiki verða svo valdir 16 leikmenn sem munu fara til Skotlands helgina 14.-17. ágúst og taka þar þátt í æfingarmóti.

ÍBV óskar Evu innilega til hamingju með þennan árangur.