Yngri flokkar - Þrír fá ÍBV í U-17 hjá HSÍ.

23.mar.2015  13:49
Þeir Andri Ísak Sigfússon, Logi Snædal og Friðrik Hólm voru í dag allir valdir til æfinga með U-17 ára landsliði Íslands í handbolta.  Í æfingahópnum eru valdir að þessu sinni 32 leikmenn.  Æfingarnar fara fram í Garðabæ og Hafnarfirði vikuna fyrir Páska.
Þjálfarar liðsins eru þeir Kristján Arason og Konráð Olavsson.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.