Yngri flokkar - Þrír frá ÍBV í U-19 hjá HSÍ.

19.mar.2015  18:02
Þeir Dagur Arnarsson, Hákon Daði Styrmisson og Nökkvi Dan Elliðason voru í dag valdir til æfinga með landsliði Íslands U-19 ára í handbolta sem mun æfa saman um Páskana.  Einar Guðmundsson þjálfari liðsins valdi 31 leikmann til æfinganna sem fara fram í Kaplakrika í Hafnarfirði.
ÍBV óskar þessum efnilegu peyjum innilega til hamingju með þennan árangur.