Yngri flokkar - Fjarðabyggð kemur á Pæjumót

26.apr.2007  17:18
Austfirðingar hafa tilkynnt þátttöku á pæjumótið í sumar. Fjarðabyggð er sameiginlegt lið Súlunnar Stöðvarfirði, Leiknis Fáskrúðsfirði, Þróttar Neskaupstað, Austra Eskifirði og Vals Reyðarfirði. Það er okkur sérstök ánægja að bjóða lið Fjarðabyggðar velkomið til leiks á Pæjumótið.