Fótbolti - Leik ÍBV og Grindavíkur frestað til 18. ágúst

07.ágú.2005  14:43

Vegna veðurs hefur leik ÍBV og Grindavíkur sem fara átti fram kl. 18 í dag, verið frestað til fimmtudagsins 18. ágúst kl. 19. Ástæðan fyrir að ekki er frestað til morguns, er áður frestaður leikur FH og Grindavíkur sem fram fer n.k. miðvikudag í Kaplakrika.

Næsti leikur ÍBV verður því í Frostaskjólinu 14. ágúst, gegn KR-ingum og verður sá leikur sýndur beint á sjónvarpsstöðinni SÝN.