Þrjár fá ÍBV á æfingar hjá HSÍ

12.nóv.2018  09:54

Rakel Dögg Bragadóttir og Sigurjón F. Björnsson, þjálfarar U-17 ára landsliðs kvenna í handbolta hafa valið 28 manna hóp til æfinga 22. – 25. nóvember.
Þau völdu þrjá leikmenn frá ÍBV, Andreu Gunnlaugsdóttur, Hörpu Valey Gylfadóttur og Bríet Ómarsdóttur.
Allar hafa þær verið fastamenn í þessum hóp undanfarið.

ÍBV óskar þessum efnilegu leikmönnum innilega til hamingju með þennan árangur