Handbolti - 5.flokkur karla í úrslit Íslandsmótsins í A,B,C og D liðum.

25.ágú.2008  16:28

5.flokkur karla náði þeim stórkostlega árangri að komast í úrslitakeppni Íslandsmótsins í flokki A, B, C og D liða. ÍBV sendi 5 lið til Íslandsmótsins það eitt og sér er stórmerkilegur árangur fyrir ekki stærra bæjarfélag.

A og B liðin spila í úrslitakeppninni næstu helgi og fer hún fram á Akureyri. C og D liðin spila aðra helgi, enn er óljóst hvar.

Foreldrar stráka í A og B liðum eru beðnir að koma á foreldrafund í Týsheimilinu annað kvöld (þriðjudagskvöld) kl 19:00.