Fréttir

22. maí 2013

Fulltrúaráð ÍBV íþróttafélags

ÍBV óskar eftir fólki í fulltrúaráð félagsins, viðkomandi þarf að hafa náð 35 ára aldri og hafa starfað fyrir félagið. Samkvæmt lögum félagsins skal aðalstjórn leggja eftirtalin mál fyrir fulltrúaráðið til umsagnar:

1. Tillögu um félagsslit.

2. Sölu og kaup fasteigna.

3. Byggingaframkvæmdir.

4. Veðsetningu eigna félagsins.

5. Aðrar stórar ákvarðanir er snúa að fjármálum félagsins.

Tilnefningar í fulltrúaráð skal senda á netfangið ibv@ibv.is eða í síma 891-8011

 

Aðalstjórn ÍBV íþróttafélags

Meira >

22. maí 2013

Þrír frá ÍBV í úrtakshóp U-19.

Heimir Ríkharðsson landsliðsþjálfari U-19 ára landsliðs Íslands í handbolta hefur valið þá Hreiðar Óskarsson, Bergvin Haraldsson og Svavar Grétarsson í úrtakshóp sem á að mæta í mælingar um næstu helgi.  Heimir valdi alls 47.drengi í þetta verkefni.Hreiðar, Bergvin og Svavar léku allir vel með sínum flokki í vetur og eru vel að þessu Meira >

Nú árið er liðið... Annáll ársins hjá ÍBV-íþróttafélagi

Yngri flokkastarf ÍBV í handbolta Árni Stefánsson skrifar

Ársskýrsla ÍBV-Íþróttafélags Sem Jóhann Pétursson formaður flutti á aðalfundi félagsins

21. maí 2013

ÍBV-Þróttur.

Á morgun tekur kvennalið ÍBV á móti Þróttarstúlkum á Hásteinsvelli kl. 18.00.  ÍBV er nú með 4.stig eftir þrjá leiki en lið Þróttar er án stiga.  ÍBV mun verða án Ana Maria sem á við meiðsl að stríða, þá tekur þjálfari liðsins Jón Óli út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald að Hlíðarenda síðastliðinn laugardag.
Við hvetjum alla til að mæta á völlinn og hvetja stúlkurnar til sigurs.
 
ÁFRAM ÍBV.
Meira >
Eldri fréttirÝmis skjöl
Eldri fréttir