10. mars 2010

IBV fékk hrós vegna mótaskipulags

Um síðustu helgi fór fram fundur á vegum HSI  vegna yngri flokka.  Þar var okkur eyjamönnum hrósað mikið fyrir frábæra skipulagningu á þeim mótum sem haldin hafa verið hér í eyjum.  Skiptir þetta okkur miklu máli varðandi úthlutun móta á vegum HSÍ.
 
Menn viðruðu þá hugmynd að festa mót í ákveðnum aldursflokkum hér á hverju ári. Það gæti auðveldað skipulagningu og við gætum þróað skemmtilegt mót. Það á líka eftir að auðvelda það þegar nýja höfnin verður komin í gagnið.
Meira >

30. nóvember 2009

Fréttir af handboltamótinu um síðustu helgi

Um helgina stóð IBV fyrir stóru handboltamóti.  Alls mættu um 500 iðkendur ásamt fríðu föruneyti.  Leikið var í 5.flokki drengja og stúlkna.  Í drengjamótinu voru 30.lið og 28. hjá stúlkunum.  Á laugardagskvöldinu var haldin mögnuð kvöldvaka sem hófst með Brekkusöng í kjölfarið hófst leikur milli Landsliðs og Pressuliðs þar sem einn iðkandi frá hverju félagi fékk að spreyta sig.  Strax að leik loknum hófst diskótek þar sem krakkarnir dönsuðu fram eftir kvöldi. IBV liðin stóðu sig frábærlega.  A-liðið hjá stelpunum hafnaði í 2.sæti í 2.deild og B-liðið rúllaði upp 3.deildinni.  Hjá strákunum gjörsigraði A-liðið 2.deildina.  B-liðið endaði í 2.sæti í 3.deild og C-liðið í 2.sæti í 4.deild.
Stjórn og unglingaráð IBV fékk mikið hrós fyrir frábæra framkvæmd á mótinu.
Meira >

03. nóvember 2009

Teddi með stórleik

ÍBV sigraði Selfoss2 í 3.flokki á sunnudaginn 37-32. ÍBV var mun betra liðið í leiknum og var sigurinn sanngjarn. Allir strákarnir stóðu sig vel, en Theodór Sigurbjörnsson átti stórleik og skoraði 15 mörk.
Meira >
Eldri fréttir