09. janúar 2012

Fín þrettándahelgi að baki Um 270 sjálfboðaliðar komu að hátíðinni

Á föstudagskvöldið var, voru jólin kvödd með pompi og prakt hér í Eyjum. Kvöldið hófst með stórgæsilegri flugeldasýningu af Hánni og lauk með annari sýningu ekki síðri við Höllina um tveimur tímum síðar. Í millitíðinni komu allar mögulegar kynjaverur af öllum stærðum og gerðum fram í dagsljósið til að heilsa uppá bæjarbúa að ógleymdum jólasveinunum geðprúðu. Þegar allt er talið má áætla að um 270 sjálfboðaliðar komi að því að hjálpa þessum kynjaverum til byggða.
Meira >

06. janúar 2012

Þrettándinn í kvöld -Nokkrar ábendingar fyrir kvöldið

Í kvöld koma Grýla, leppalúði og allt þeirra hyski niður úr fjöllunum til að kveðja jólin með okkur. Við viljum koma á framfæri nokkrum ábendingum til þeirra sem mæta á gleðina í kvöld.
 
  1. Rétt er að benda á að gönguleiðin verður sú sama og í fyrra. Það verður gengið áfram upp Illugagötu og beygt niður Höfðaveg.
  2. Bíleigendur eru beðnir um til að leggja ekki bifreiðum sínum í gönguleiðinni.
  3. Þá eru foreldrar hvattir til að setja börn sín í jólasveinabúninga í kvöld.
Meira >

05. janúar 2012

Þrettándablaðið komið út

Þá er þrettándablaðið komið út. Meðal efnis er annáll félagsins og hressandi grein eftir séra Ólaf Jóhann Borgþórsson. Þá er viðtal við Árna Stefánsson forstöðumann akademíu ÍBV og FÍV. Hægt er að sækja blaðið hér.
Meira >
Eldri fréttir