- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Ytri búningar á yngri flokkana06. október 2009
Hvað finnst fólki um það að þurfa að splæsa í nýja utanyfir galla á hverju ári á börnin sín?
Það er nú dágóður peningur sem fer í þetta hjá fólki sem kannski er með fleiri en eitt barn.
Það er alltaf verið að breyta um lit og snið.
Af hverju er ekki til ÍBV galli sem er bara alltaf eins og ekkert vesen?
Þóra Hrönn
Ytri búningar á yngri flokkana06. október 2009
Það væri langgiftusamlegast að hafa sömu gallana í nokkur ár.
Það er gott fyrir liðsbraginn að allir séu eins í upphitunum og slíku en það er sjaldan ef það er skipt um á hverju ári.
BjarniBen
Ytri búningar á yngri flokkana06. október 2009
Þetta er búið að vera í algjörum ólestri hjá félaginu. Ef menn vilja sitthvoran lit á upphitunargallann á stelpur og stráka, þá er það í lagi. En að 6. flokkur karla og 5. flokkur séu í sitthvorum litnum er auðvitað algjörlega út í hött. Þarna klikkaði stjórn félagsins illilega en vonandi lærði hún af þessum mistökum. Útgjöld foreldra eru næg fyrir í ferðakostnaði...
Haukur
Ytri búningar á yngri flokkana06. október 2009
Þörf ábending, það er alltof mikið að þurfa að endurnýja gallana á hveju ári og eins með búningana þeir eru alltaf að breytast. Það þarf að koma þessu í fast form og hafa það þannig að það sé hægt að nota sömu búninga og galla í nokkur ár og helst að hafa þá alltaf eins því þetta er jú ÍBV.
NN
Ytri búningar á yngri flokkana06. október 2009
Samningurinn til 3ja ára við Hummel ætti að svara þessu kalli. Sama vara í 3 ár. Mér finnst mjög gott skref að gefa út að þetta verði í 3 ár svo fólk lendi einmitt ekki í þessu.
Jón Óskar
Ytri búningar á yngri flokkana06. október 2009
Sælt veri fólkið. Mig langar að svara þessu spjalli aðeins. ÍBV galli er eitthvað sem hefur verið til í Axel Ó en enginn hópur hefur keypt. Flokkarnir hafa verið að kaupa annarskonar fatnað sem eru jú bláir og rauðir og voru menn að taka sitthvort en það voru foreldraráðin sem gerðu þetta en ekki stjórnir félagsins. Mönnum hefur verið frjálst að kaupa ÍBV gallan á þessa hópa en margir foreldrar hafa sagst vera þreitt á þessum svarta ÍBV lit og langað að breyta til því þetta hefur mest verið fjármagnað með auglýsingum á þessa galla. En nú kemur ný Hummel(ÍBV) lína sem mun duga í 3.ár og ætlar stjórn félagsins að grípa inní með að "ákveða" ákveðna vöruflokka með ákveðnum litum sem foreldrafélögin munu geta keypt þannig að þetta mun ekki stangast á eins mikið og var sérstaklega s.l. sumar. Með von um gott áframhaldandi samstarf.
Íþróttakveðja
Maggi Steindórs
Ytri búningar á yngri flokkana07. október 2009
Takk fyrir að upplýsa okkur um þetta Maggi.
Það er bara hið besta mál ef þetta er að komast í einhverjar fastar skorður :o)

Takk fyrir svarið Maggi. Þetta verður þá vonandi í lagi næstu þrjú árin. Gott að hafa svona traust fyrirtæki í samstarfi með félaginu okkar.
Haukur
Ytri búningar á yngri flokkana07. október 2009
Til baka...
Takk fyrir að upplýsa okkur um þetta Maggi.
Það er bara hið besta mál ef þetta er að komast í einhverjar fastar skorður :o)
Þóra Hrönn