- Skrifstofan
- Lög félagsins
- Starfsfólk
- Stjórn ÍBV
- Spjallið
- Pæjumót TM
- Shellmótið
- Þjóðhátíð
- Ljósmyndir
- Þrettándinn
- Orkan og ÍBV
ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Hummel-samningur05. október 2009
Það væri gaman að vita hver aðkoma knattspyrnudeildar var að 3ja ára samningi ÍBV-Íþróttafélags um að nota Hummel-fatnað til 2012. Hér er stór útgjaldaliður deildarinnar á ferðinni og væri gaman að vita að hve miklu leiti deildin hefur tækifæri til að stýra þessum útgjaldalið. Ég veit ekkert um hvort samningurinn er góður eða slæmur en mig langar að vita hvort knattspyrnudeild hafi fengið að gæta hagsmuna sinna og e.t.v. leita betri samninga.
Jón Óskar
Hummel-samningur05. október 2009
Þetta eru ágætis spurningar sem væri gaman að fá svör við.
jj
Hummel-samningur06. október 2009
Samála því kanski að einhver upplýsi okkur um þetta nema að þetta sé leindarmál.
Sverrir Júll
Hummel-samningur06. október 2009
Sælir félagar. Það er gott mál að fólk sé vakandi yfir málefnum ÍBV og þá hvað betur má fara í þeim efnum. Samningur við Hummell hefur verið í gangi í nokkur ár og var framlengdur núna. Að mínu mati gott mál enda hefur samstarfið við Hummell og Axel Ó verið mjög gott. Aðalstjórn gerir þennan samning við Hummell enda um að ræða alla flokka félagsins. Það sem stendur upp úr og er helsta breytingin er sú góða þjónusta sem Axel Ó veitir félaginu. Menn þurfa ekkert að fara mörg ár aftur í tímann til þess að sjá hálft liðið leika í gömlum búningum og hálft í nýjum. Spurningin hlýtur líka að vera sú hvort ÍBV hafi getað fengið betri samning við aðra aðila á þessum tímum og þá fórnað "heimaþjónustu" fyrir vikið. Ég held að menn geri sér ekki alveg grein fyrir því hversu mikilvæg slík þjónusta er. Eins hlýtur það að vera meðmæli með Hummell að flest félög í efstu deild eru með samning við þá.
kveðja
Svenni Þórðar
Svenni Þ.
Hummel-samningur06. október 2009
Sælir félagar. Það er gott mál að fólk sé vakandi yfir málefnum ÍBV og þá hvað betur má fara í þeim efnum. Samningur við Hummell hefur verið í gangi í nokkur ár og var framlengdur núna. Að mínu mati gott mál enda hefur samstarfið við Hummell og Axel Ó verið mjög gott. Aðalstjórn gerir þennan samning við Hummell enda um að ræða alla flokka félagsins. Það sem stendur upp úr og er helsta breytingin er sú góða þjónusta sem Axel Ó veitir félaginu. Menn þurfa ekkert að fara mörg ár aftur í tímann til þess að sjá hálft liðið leika í gömlum búningum og hálft í nýjum. Spurningin hlýtur líka að vera sú hvort ÍBV hafi getað fengið betri samning við aðra aðila á þessum tímum og þá fórnað "heimaþjónustu" fyrir vikið. Ég held að menn geri sér ekki alveg grein fyrir því hversu mikilvæg slík þjónusta er. Eins hlýtur það að vera meðmæli með Hummell að flest félög í efstu deild eru með samning við þá.
kveðja
Svenni Þórðar
Svenni Þ.
Hummel-samningur06. október 2009
Er það virkilega satt að varabúningar ÍBV í handbolta og fótbolta á næsta ári verðir grænir? Ég á eftir að sjá félaga minn Sigga Braga spila í grænum búning með ÍBV merkinu á.
Kjartan Vídó
Hummel-samningur06. október 2009
Þeir voru nú (fjólu) bláir í sumar. Allt í lagi að hafa þá græna næst ;-)
Haukur
Hummel-samningur06. október 2009
Gott mál að endurnýja búningana, en er alltaf nauðsynlegt að breyta útliti og lit í hvert skipti sem gerður er nýr samningur er ekki hægt að halda sig við sama útlit á búningunum alltaf.
NN
Hummel-samningur06. október 2009
Takk fyrir svarið Svenni. Ástæðan fyrir að ég henti inn spurningunni (sem reyndar var ekki svarað) er sú að ég hafði uppá mitt einsdæmi hafið vinnu við að leita nokkuð góðrar lausnar með sparnað félagsins að leiðarljósi og ætlaði eiginlega að splæsa hugmyndinni á félagið. Hugmyndin átti bæði að spara kostnað og auka tekjur félagsins. Tómur aulaskapur í mér að hafa ekki sagt fleirum af því en ég gerði og ég áttaði mig ekki á að ég hefði átt að tala við aðalstjórn félagsins en ekki knattspyrnuráð. Hafði ég í huga bæði meistaraflokka og yngri flokka félagsins og var hugmyndin að vera með sömu vörur til sölu í 3-5 ár teldi félagið það fýsilegan kost. Ég er þeirrar skoðunra að félagið eigi sjálft að selja ÍBV-varning og hafa af því tekjur og hagnað. En það er bara mín skoðun.
Jón Óskar
Hummel-samningur06. október 2009
Jón Óskar, þessi lína sem ÍBV mun spila í mun verða í 3.ár. Þetta er í fyrsta skipti sem við förum í línu frá Hummel sem við byrjum á sama tíma og hún kemur út, höfum alltaf verið ári á eftir þannig að hún hefur síðustu tvö skipti verið í tvö ár. ÍBV reyndi áður en ég kom að Hummel samningnum að selja sjálfir Hummel vörur en með misjöfnum árangri, og leituðu þeir þá til mín með að ég tæki yfir þennan samning og myndi sjá um hann með ágætis árangri. vonandi að þetta svari einhverjum spurningum !!
Maggi Steindórs
Hummel-samningur06. október 2009
Það er ekki sama hvernig staðið er að sölu hvar sem hún er og í hvaða mynd sem hún er. Kem sjálfur að verslunarrekstri í dag og þekki að eigin raun. ÍBV hefur ekkert með slíkt að gera nema vel sé staðið að málum. Algerlega sammála þér þar Maggi. Svo ég útskýri mína sýn á málin þá þekki ég búningasölu hjá Knattspyrnudeild ÍBV sem gekk vel og skilaði góðum pening í kassann hjá deildinni. Keypt í heildsölu og selt í smásölu. Út úr þessu komu tekjur sem aðrir í félaginu sáu eftir í knattspyrnuna og búningasalan var rifin af deildinni og sett til aðalstjórnar þegar þetta félag var stofnað. Verslun með þessar vörur í höndum aðalstjórnar félagsins fór eins og þú lýsir Maggi, ekki í góðan farveg, og boltinn fór að lokum til þín og ég efast ekki um að þú standir þína vakt í því. Slíkt fyrirkomulag var hinsvegar í boði á þeim tíma þegar knattspyrnudeildin var með þessa sölu en eftir að hafa skoðað málið, þá borgaði sig ekki að fara þá leið að útvista búningasölunni því það borgaði sig að taka álagninguna í félagið. Ég geri mér fulla grein fyrir að málið er viðkvæmt, en sem félagsmaður í ÍBV leyfi ég mér að hafa skoðun á þessu því félaginu sárvantar að spara í kostnaði og afla tekna. Kannski eru breyttir tímar og þetta besta fyrirkomulagið á sölunni, ég ætla ekki að gefa mér neitt um það fyrirfram, en spurningin sem eftir stendur og ég ritaði í upphafi snerist raunar um það að hvaða leiti stjórn knattspyrnudeildar kom að þessari samningsgerð og hvort bornir hefðu verið saman kostir en ég skil málið sem svo að þetta sé samningur án aðkomu knattspyrnudeildar. Ég fagna því hinsvegar að menn horfi til 3ja ára í þessu sambandi. Ég bið menn að fyrirgefa afskiptasemina.
Jón Óskar
Hummel-samningur09. október 2009
Til baka...
Góður Jón óskar loksin einhver sem þorir að tala um þetta mál.Ég er hinsvegar með spurningu sem mér vantar svar við en það er varðandi búnigasölu hér í bænum verður maður að fara til eyja til að versla sér treyju eða trefil eða hvað sem er ég er frekar þreitur á þessu sem stuðningsmaður ÍBV þá er ekki neit í boði hér í bænum fyrir mig eða aðra eyjamenn sem hafa áhuga að versla vörur til að styrkja sitt lið.
Væri gaman að fá upplýsingar hvort á að selja eithvað af ÍBV-vörum í bænum og hvar þér er ekki hægt að gera þetta vel þá meina ég 110%
Sverrir Júll













