ForsíðaFótboltiHandboltiSvara þræði
Spjall
Hvaða leikmenn getum við fengið?28. september 2009
Nú er tímabilið lokið og við náðum að halda okkur uppi og var það án efa markmið sumarsins, svo vel gert. Núna eru lið strax farinn að ná sér í leikmenn og er fróðlegt að sjá hvað er í boði fyrir okkur. Það settur okkur í smá vandræði að vera lið sem er ekki á höfuðborgarsvæðinu og er nokkuð ljóst að við getum ekki verið að keppa við Val,FH,KR eða jafnvel Keflavík eftir leikmönum. Það eru aðalega útlendingar, leikmenn úr 1.deild, leikmenn úr Fjölnir og Þrótti og svo ef einhverjir gamlir eyjamenn langar að koma til baka til besta staðar í heimi. Útlendingar: ég vona að við höldum úganda leikmönunum en ég er ekki viss um að við náum að fá þá ensku aftur. Ef ekki þá þarf líklega að koma að minnsta kosti einn leikmaður í viðbót. 1.deild: Ég sá nokkra leiki þar og eru einn og einn ágætir þarna sem má skoða. Fjölnir og Þróttur: Mér fannst Magnús már vera sterkur hjá Þrótti(ég veit að við vorum með hann og það endaði í rugli en það má alltaf prófa aftur) svo má ekki gleyma Tómasi leifsyni hjá Fjölnir sem er virkilega skemmtilegur leikmaður. Eyjamenn: Tryggvi,Atli og Gunni sig ég skal splæsa í flug.Reikna ekki með neinum enda þeir að standa sig vel þar sem þeir eru en það má alltaf vona. En ég tel það nokkuð ljóst að við þurfum að styrkja liðið okkar enfrekar fyrir næasta tímabil og halda okkar sterkustu leikmönum. Hvað segjið þið?
SiggiE
Hvaða leikmenn getum við fengið?29. september 2009
Það er ljóst að liðið þarf að styrkja. Það er samt erfitt í svona efnahagskreppu, en samt alveg gerlegt. Menn þurfa bara að vera með allar klær úti. Við getum ekki annað árið lagt traust á það að verði einfaldlega tvö lið sem verði slakari en við eins og við "gerðum" í ár. Framherja sem kemur með sjálfstraust og reynslu inn í þetta lið vantar sárlega. Ég tel að það verði erfitt að byggja upp unga sóknarmenn í þessu liði án þess að fá einhvern reyndann mann í framlínuna með þeim. Svo finnst mér líka að það vanti sárlega hávaxinn og sterkann leiðtoga í miðju varnar til að binda hana saman. Ef við gefum okkur það að við höldum þeim leikmönnum sem voru hjá okkur í sumar, að þá held ég að liðið þurfi ekki nema tvo leikmenn til þess að uppskera næsta sumars verði betri en hún var núna.
Beggi
Hvaða leikmenn getum við fengið?29. september 2009
Það er nú svo að í óáreiðanlegum slúðurpökkum voru bæði Ian Jeffs og Atli orðaðir frá sínum félögum. Valur er náttúrulega í ruglinu og við þurfum leikmann eins og Jeffsy. Er það ekki einhver möguleiki?
BjarniBen
Hvaða leikmenn getum við fengið?29. september 2009
Algjörleg sammála Begga, við þurfum einhvern reyndan framherja með ungu peyjunum okkar. Einhver sem fer ekki í panikk þegar hann kemst í færi eða missir sjálfstraustið ef hann klúðrar einu færi. En það er spurning hvar þennan mann er að finna, og þess þá heldur hvort hann er í boði fyrir okkur :-) Jeffsy og Atli væru náttúrulega himnasending fyrir okkur, þó svo að ég búist nú ekki við því að þeir séu á leið heim til Eyja. En auðvitað ætti að ræða við þá, Atli er nú að klára samninginn eftir því sem ég best veit. Annað árið í efstu deild reynist mörgum liðum ansi erfitt, eins og sást í sumar hjá liðunum sem féllu, og því þurfum við 2-3 leikmenn til viðbótar við þann hóp sem við höfum. Þá erum við vel samkeppnishæfir á næsta ári til að stefna hærra en nú í sumar. ÁFRAM ÍBV!
Smári Jökull
Hvaða leikmenn getum við fengið?29. september 2009
Vonandi þarf sem minnst að hrófla í þessu. Liðið var orðið mjög gott um miðbik móts. Er einhver möguleiki að fá CREW-arana aftur. Það teldi ég aðalatriðið, helst að gera samning við þá. Magnaðir leikmenn á besta aldri osfr. En það er kannski of dýrt? Auðvitað væri frábært að fá þá félaga, Atla og Jeffsy aftur. En svona án gríns þá er stóra málið að við erum að lenda á eftir t.d Selfoss hvað uppbyggingu varðar... Þar verðum við að taka til. Nú hafa þeir bætt knattspyrnunni inn í akademíuna sem verður til þess að þeir fá mun betri íþróttamenn upp en ella. Í handboltanum eiga þeir núna um 7 leikmenn í yngri landsliðum og er það einungis vegna þess að þeir eru í þessari akademíu, þeir komu liði í úrvalsdeild í körfu, einungis vegna akademíunar... og nú er það fótboltinn. Hér VERÐUR að fara að taka til í þessum málum og koma svipuðu apparati á fót. Það þarf að fá hingað aðila til þess að setja þetta upp og helst sem fyrst. Það er orðið háalvarlegt mál ef okkar drengir/stúlkur séu farin að líta annað útaf þessu. Hér er aðstaðan, krakkarnir osfr.
KLM
Hvaða leikmenn getum við fengið?30. september 2009
Þetta er pakkinn: Ian Jeffs kemur til að ala soninn upp í eyjum. Atli Jóhanns, kemur aftur heim fyrir mömmu og pabba, Atli Heimisson kemur aftur til íBV til að sanna sig í efstu deild á Íslandi, Gunnar Heiðar kemur heim til að koma sér í formið. Ásgeir Aron kemur til að feta í fótspor pabba með ÍBV. HemmiHreiðars kemur til að byrja þjálfaraferilinn með Heimi og klára ferilinn í eyjum og gefa dætrunum séns á að leita að lundapysjum. Olgeir snýr til baka sem týndi sonurinn, OG Tryggvi Guð orðinn leiður á bekkjarsetunni hjá Heimi þjálfara FH, og langar að bæta markametið og Ajay og Clements koma til endurupplifa eyjarnar. Með núverandi hóp og þessa viðbót verður ÍBV Íslandsmeistari.
nn
Hvaða leikmenn getum við fengið?30. september 2009
Haha, með núverandi hóp og þessa viðbót verður ÍBV Íslandsmeistari og með annað lið um miðja deild:p
BjarniBen
Hvaða leikmenn getum við fengið?05. október 2009
Hvað með að fá leikmann ársins í 2. deild, Eyjamanninn Sigurvin Ólafsson?
Haukur
Hvaða leikmenn getum við fengið?05. október 2009
KLM - hittir naglann á höfuðið þarna í akademíu umræðunni, við vorum nú búnir að teikna þetta upp fyrir einum 7 árum ef að ég man rétt, áhuginn hefur ekki verið til staðar á réttum stöðum - svo einfallt er það -menn hafa talað og svo numið staðar. - Varðandi Venna þá er nú búið að reyna við hann nnokkrum sinnum síðustu ár....en ekki gengið og nú held ég að hann sé að stofna fyrirtæki í bænum. Hemmi er góð hugmynd. Crewe á alveg að vera möguleiki áfram sem fyrr, við höfum alveg okkar sambönd þar. Með aðra leikmenn þá verður bara að skoða það. Personulega held ég að sterkt væri að halda nánast sama hóp til að hafa stöðugleika í kringum þetta - bæta inn kannski 2 spilurum - sætið í deildinni þarf að tryggja. Atriði númer 1 í mínum huga er að ná stöðugleika í deildinni. Vinna í fjármálum félagsins síðan geta menn farið að spá í evrópusæti en næstu 2-3 árin sé ég ekki Evrópusæti nema að menn komi inn bakdyrameginn og óvænt komist í þannig stöðu. Félagið hefur á þessum tímapunkti held ég ekki bolmagn í það að fara að leggja eitthvað undir í nafni þess að menn ætli í Evrópukeppni...það er of riský og eftir köstin gætu orðið slæm. ....en ekkert að þessu sem sagt er hér á undan breytir því að ÍBV er liðið
Foster-inn
Til baka...